Til að leita skilvirkt að heimildum er mikilvægt að kunna leitartækni því verkefnavinna í háskóla krefst þess að nemendur geti leitað að og fundið áreiðanlegar heimildir til að byggja vinnu sína á. Þetta eru heimildir sem teljast fræðilegar enda séu þær byggðar á vísindalegum rannsóknum.
Með því að nota gagnasöfn HR og tímaritaleitina má finna heimildir í tímaritsgreinum sem margar hverjar eru ritrýndar, en ritrýni telst merki um gæði á rannsóknum þar sem vísindafólk úr sömu fræðagrein yfirfara rannsóknarvinnuna og meta grein hæfa til birtingar eður ei. Ýmsar skýrslur opinberra stofnana og fyrirtækja geta einnig talist áreiðanlegar heimildir.
En hvernig má fullvissa sig um gæði heimilda? Hægt er að prófa kunnáttu sína í að finna og þekkja áreiðanlegar heimildir með þessu sjálfsprófi.
Þegar leitað er að heimildum veltur allt á að nota vel valin leitarorð sem ná yfir það sem leitað er að. Þannig er mikilvægt að nota lykilhugtök sem koma fram í verkefnalýsingunni sem leitarorð.
Einnig þarf að hugsa út fyrir kassann og finna samheiti, þrengri heiti og/eða víðari heiti, hvort sem er á íslensku eða öðrum tungumálum.
Ef notað er dæmið hér að ofan um fylgni lystarstols og þunglyndis þá gæti verið hægt að nota orðin átröskun og depurð en einnig er mikilvægt að hugsa um tímabil (miðar verkefnið við að skoða ákveðið tímabil af rannsóknum, t.d. 2000-2020) og landssvæði (miðar verkefnið við að skoða ákveðin hluta heimsins (t.d. Norðurlönd eða Evrópu) eða einskorðast það við Ísland?
Eftirfarandi vefir geta verið gagnlegir við að finna samheiti og skyld heiti leitarorða;
Oftast er ekki nóg að leita með einu stöku leitarorði, það skilar yfirleitt takmörkuðum niðurstöðum. Þegar leitað er með fleiri en einu leitarorði eru notuð svokölluð Boolean-leitarorð AND, OR og NOT og þau orð eru alltaf skrifuð með stórum stöfum.
AND = til að finna tvö eða fleiri orð saman
o children AND behavior
o Iceland AND banks AND crisis
OR = til að finna annað hvort orðið
o lystarstol OR anorexia
o kórónuveira OR Covid-19
NOT = útilokar orð sem ekki eiga að vera í niðurstöðunum
o jaguar NOT car (þegar verið er að leita að heimildum um kattardýrið jagúar)
o fuji NOT film (þegar verið er að leita að heimildum um fjallið Fuji í Japan)
Flestar leitarvélar og gagnasöfn skilja bil á milli orða þannig að leita skuli að báðum leitarorðunum (eða öllum leitarorðunum, ef orðin eru fleiri en tvö), en það er þó alls ekki algilt.
Í Google og Google Scholar er notað + (plús merkið) í stað AND og - (mínus merkið/bandstrikið) í stað NOT.
Í flestum gagnasöfnum og bókasafnskerfum býður ítarleitin (advanced search) upp á að velja Boolean orðin AND, OR og NOT í felligluggum og setja leitarorðin þannig saman.
Setjið gæsalappir „...“ utan um orð sem eiga að haldast saman í leitinni, t.d.
Og svo má blanda gæsalöppum saman við Boolean orð, t.d.
Ef leitarorð hefur fleiri en eina mögulega endingu er hægt að setja stjörnu * fyrir aftan og þá skilar leitin öllum mögulegum endingum. Einnig er hægt að setja stjörnu inn í mitt orð þegar til eru tvær mismunandi stafsetningar á orðum. Stjarna getur þýtt enginn stafur, einn stafur eða margir stafir.
Langvinsælasta leitarvélin í dag er Google.
Þegar leitað er á Google skilur leitarvélin bil á milli orða þannig að verið sé að biðja um vefsíður sem innihalda bæði leitarorðin (eða öll, ef slegin eru inn fleiri en tvö leitarorð) í sömu vefsíðunni.
En ef tryggja á að bæði eða öll leitarorðin komi fyrir á hverri vefsíðu í niðurstöðulistanum, verður að setja + (plús merkið) fyrir framan öll leitarorðin og alveg klesst upp við orðin, t.d.
Ef útiloka á leitarorð úr niðurstöðunum þá er notað – (mínus merkið / bandstrikið) og alveg klesst upp við orðin, t.d.
Setjið alltaf gæsalappir utan um orð sem eiga að haldast saman í leit á Google, t.d.
Ef finna á fræðilegar heimildir á netinu er mælt með að nota Google Scholar sem finnur greinar í fræðilegum tímaritum ásamt öðru áreiðanlegu efni á netinu. Hægt er að stilla Google Scholar þannig að leitarvélin gefur linka í fullan texta tímaritsgreina í gagnasöfnum sem bókasafnið hefur aðgang að og birtist þá Til|Available@RU.is hægra megin á skjánum.
Til að stilla Google Scholar sjá leiðbeiningar fyrir stillingar.
Vefsíður falla ekki allar undir þá skilgreiningu að vera áreiðanlegar heimildir. Vefsíður sem vistaðar eru hjá opinberum stofnunum ættu þó í flestum tilfellum að flokkast sem áreiðanlegar heimildir.
Neðangreind viðmið eru oft notuð til að meta áreiðanleika vefsíðna:
Traustur ábyrgðaraðili
Óhlutdræg umfjöllun
Nýjar upplýsingar
Bókasafn HR er áskrifandi að fjölda gagnasafna, ásamt því að veita aðgang að gjaldfrjálsum gagnasöfnum innlendum og erlendum. Yfirlit yfir gagnasöfnin er að finna á gagnasafnasíðu safnsins.
Helstu gagnasöfnin eru eftirfarandi:
Samsteypusafnið ProQuest. – Gagnasöfn á víðu fræðasviði sem bjóða aðgang að greinum (útdrætti og fullan texta) í ritrýndum sérfræðitímaritum og almennum tímaritum, greinar í dagblöðum og ýmsar fréttaveitur.
Sérfræðisöfn henta til að leita á einstökum fræðasviðum. – T.d. viðskiptafræðisafnið MarketLine, lögfræðisöfnin FonsJuris (íslenskt), Karnov (danskt) og Lovdata (norskt) og tölvunarfræðisafnið ACM Digital Library.
Gagnasöfn sem útgefendur sérfræðitímarita reka. - Wiley, SAGE Journals, Science Direct (Elsevier) og Springer.
Tilvísanasöfn, þ.e. söfn sem gefa upplýsingar um og útdrátt úr greinum í sérfræðitímaritum (ekki boðið upp á fullan texta í gagnasafninu sjálfu). – T. d. Web of Science (WoS), sem er gagnasafn ISI (Institute of Scientific Information), hágæða-tímarit á ýmsum fræðasviðum. ATH að ef önnur gagnasöfn sem safnið hefur aðgang að, hafa að geyma fullan texta greina, gefur WoS tengingu í fullan texta í gegnum þau söfn.
Íslensk gagnasöfn t.d.:
o Timarit.is - íslensk tímarit frá upphafi útgáfu
o Opin vísindi - rafrænt varðveislusafn fyrir ritrýndar vísindagreinar, doktorsritgerðir og efni sem birtist í opnum aðgangi á vegum íslenskra háskóla
o Hirslan (varðveislusafn Landspítala-Háskólasjúkrahúss) - mestmegnis greinar og ritgerðir í heilbrigðisvísindum
o Rafhlaðan - efni sem eingöngu hefur verið gefið út á rafrænu formi
o Skemman – varðveislusafn lokaverkefna og lokaritgerða í íslenskum háskólum
o Greinasafn Mbl . – greinar úr Morgunblaðinu
Bókasafn HR notar bókasafnskerfið Gegnir, sem er sameiginlegt kerfi fyrir íslensk bókasöfn, og eru m.a. öll háskólasöfn og almenningsbókasöfn á Íslandi inni í kerfinu. Leitir.is er leitarvefur sem leitar samtímis í bókasafnskerfinu Gegnir og í þeim erlendu og innlendu gagnasöfnum sem HR býður aðgang að. Ef slegið er inn leitarorð á forsíðu Leitir.is skilar leitin niðurstöðum bæði úr bókasafnskerfinu og gagnasöfnunum. En ef leita á í bókasafnskerfinu eingöngu þarf fyrst að smella á "Velja safn" og þá er hægt að leita sérstaklega í safnkosti valins bókasafns. Nemendur geta fengið aðgang inn á Leitir.is og geta með því endurnýjað útlánin sín og tekið frá efni. Ef nemendur hafa ekki nú þegar fengið lykilorð þá er hægt að nálgast nýtt hjá bókasafinu með því að koma í afgreiðsluna eða senda tölvupóst á bokasafn@ru.is.
Eftirfarandi eru leiðbeiningar um leitir og ýmsar aðgerðir fyrir Leitir.is :
Tímaritalisti bókasafnsins gefur yfirlit yfir öll tímarit safnsins. Tímaritin eru aðgengileg í gegnum hin ýmsu gagnasöfn, sum aðgengileg í fleiri en einu gagnasafni.
Ef finna á ákveðið tímarit í tímaritalista er titill þess sleginn inn í leitargluggann og hakað við "Byrjar á". Hægt er að velja að fá bara niðurstöður með ritrýndum tímaritum.
Einnig má fletta í gegnum tímaritalistann með því að slá inn orð sem titill tímaritsins á að innihalda t.d. accounting eða jafnvel slá inn stofn orðs ásamt stjörnu account* og haka við "Inniheldur", sem skilar þá niðurstöðum fyrir allar endingar orðsins.
Í niðurstöðum tímaritsleitarinnar er gefin krækja í tímaritið sem hjá einu eða mögulega fleiri gagnasöfnum, ásamt upplýsingum um aðgengi að tímaritinu: Þ.e. tímabil áskriftar (hve langt aftur í tímann áskriftin nær), hvort birtingartöf sé á tímaritinu (oft er ekki aðgangur að nýjustu tölublöðunum) og hvort það sé ritrýnt.
Til að finna áhrifamikil tímarit á ákveðnu fagsviði má slá titli tímaritsins upp á Thomson Reuters Master Journal List, en þar má finna öll svokölluð ISI tímarit. ISI tímarit eru þau tímarit sem komast á lista Institute of Scientific Information, en sá listi er uppfærður árlega.
Áhrifastuðull (e. impact factor) er mælikvarði sem endurspeglar meðalfjölda tilvitnana í greinar sem gefnar hafa verið út í viðk. tímariti tvö undangengin ár. Áhrifastuðlar tímarita geta nýst til að finna áhrifamikil tímarit innan fagsviða. InCites Journal Citation Report (JCR) inniheldur upplýsingar um áhrifastuðla vísindatímarita, þ.e. hve áhrifamikið hvert tímarit á ISI listanum er innan síns fagsviðs.
Bókasafnið hefur einnig tekið saman lista yfir ritrýnd íslensk tímarit sem aðgengileg eru í fullum texta:
Andvari – Tímarit Hins íslenska þjóðvinafélags www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Árbók Hins íslenska fornleifafélags www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Árbók VFÍ/TFÍ www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Bifrost Journal of Social Science http://hdl.handle.net/1946/7752 (ekki leitarbært)
Gripla (alþjóðlegur vettvangur fyrir rannsóknir á sviði íslenskra og norrænna fræða, einkum handrita- og textafræða, bókmennta og þjóðfræða) www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Hugur - Tímarit um heimspeki heimspeki.hi.is/?page_id=59 (ekki leitarbært - lítið í fullum texta)
Icelandic Agricultural Sciences http://keldur.is/icelandic_agricultural_sciences (ekki leitarbært) *
Icelandic Review of Politics and Administration irpa.is (leitarbært)
Iðjuþjálfinn www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Íslenska þjóðfélagið www.thjodfelagid.is (leitarbært)
Íslenskt mál og almenn málfræði www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Jökull - Ársrit Jöklarannsóknarfélags Íslands og Jarðfræðafélags Íslands www.jokulljournal.is (ekki leitarbært og abstraktar í meirihluta tilfella) *
Landabréfið http://landfraedi.is/skjalasafn/landabrefid-timarit/?weaverii_mobile_toggle=web_view (ekki leitarbært)
Ljósmæðrablaðið www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Læknablaðið www.laeknabladid.is (leitarbært) *
Lögfræðingur – Tímarit laganema við Háskólann á Akureyri logfraedingur.unak.is (ekki leitarbært)
Milli mála - Ársrit Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur í erlendum tungumálum www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Náttúrufræðingurinn www.hin.is (leitarbært)
Netla – Veftímarit um uppeldi og menntun frá menntavísindasviði HÍ netla.hi.is/ritrynt_efni (leitarbært)
Nordicum-Mediterraneum - Icelandic E-journal of Nordic and Mediterranean Studies nome.unak.is (ekki leitarbært)
Orð og tunga - Ársrit Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum https://ordogtunga.arnastofnun.is/index.php/ord-og-tunga (ekki leitarbært - eingöngu abstraktar)
Ritið – tímarit Hugvísindastofnunar https://ritid.hi.is/index.php/ritid
Ritröð Guðfræðistofnunar - Studia Theologica Islandica ojs.hi.is/ritrodgudfraedistofnunar (leitarbært)
Saga - Tímarit Sögufélags www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Sálfræðiritið www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Sjúkraþjálfarinn www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Són - Tímarit um óðfræði http://bragi.arnastofnun.is/timaritid_son/ (leitarbært)
Stjórnmál og stjórnsýsla / Icelandic Review of Politics and Administration www.irpa.is (leitarbært)
Tannlæknablaðið www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Tímarit félagsráðgjafa http://www.timaritfelagsradgjafa.is/
Tímarit hjúkrunarfræðinga www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Tímarit lífeindafræðinga www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
Tímarit lögfræðinga 1951-2004 www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Tímarit lögfræðinga frá 2005 (aðeins fyrir HR-inga með HR-lykilorðum) www.leitir.is (finnur titla greina og höfunda) eða www.ru.is/timarit (finnur tímaritið)
Tímarit lögfræðinga er einnig aðgengilegt í gagnasafninu FonsJuris www.fonsjuris.is en einungis fyrir nemendur og fasta starfsmenn Lagadeildar HR
Tímarit Lögréttu - Félags laganema við HR (aðeins fyrir HR-inga með HR-lykilorðum) www.leitir.is (finnur titla greina og höfunda) og www.ru.is/timarit (finnur tímaritið en ekki greinar)
Tímarit um menntarannsóknir timarit.is/view_page_init.jsp?pubId=1140
Tímarit um uppeldi og menntun ojs.hi.is/tuuom (leitarbært)
Tímarit um viðskipti og efnahagsmál www.efnahagsmal.is (leitarbært)
Til að sjá hvort grein er ritrýnd þarf að fara inn í fullan texta í PDF skjali. Í neðanmálsgrein á fyrstu síðu greina koma fram þakkir til „ónafngreindra ritrýna“.
Uppeldi og menntun www.timarit.is (hægt er að leita innan tímaritsins með því að velja Titlar í efstu skipanastikunni)
Úlfljótur – tímarit laganema www.ulfljotur.is/registurokkar (leitarbært - einungis abstraktar) - aðgengilegt á prenti hjá okkur á safninu
Úlfljótur er einnig aðgengilegt í gagnasafninu FonsJuris www.fonsjuris.is en einungis fyrir nemendur og fasta starfsmenn lagadeildar HR og þá nemendur sem eru með lögfræði sem auka grein
Öldrun - tímarit um öldrunarmál www.hirsla.lsh.is (leitarbært - smellið á Communities á vinstri valseðlinum og veljið síðan Journal articles, peer-reviewed)
* Viðkomandi tímarit er á ISI listanum (Institute for Scientific Information), en þessi tímarit eru einu íslensku tímaritin sem eiga sæti á þeim lista.